Endur­fjármögnun

Viltu eignast fasteignina hraðar eða lækka greiðslubyrði af lánum?

Endurfjármögnun lána getur þá komið sér vel og það tekur aðeins nokkrar mínútur að sækja um.

Hvað er endurfjármögnun


Endurfjármögnun getur komið sér vel ef aðstæður á markaði hafa breyst, til að mynda ef vextir hafa lækkað frá því þú tókst lán upphaflega eða ef þú vilt lækka mánaðarlega greiðslur.

  • Við endurfjármögnun lánar bankinn 70% af fasteignamati.
  • Hægt er að endurfjármagna lán óháð veðsetningu ef um er að ræða endurfjármögnun á núverandi húsnæðisláni hjá Íslandsbanka.
  • Lánin geta verið verðtryggð, óverðtryggð eða blönduð.
  • Gott er að afla sér upplýsinga um hvort lánið sem á að greiða upp beri uppgreiðslugjald.
  • Lántökugjald við endurfjármögnun er 64.900 kr. Annar kostnaður, s.s. útgáfa skuldabréfs, greiðslumat, veðbandayfirlit o.fl. er skv. verðskrá bankans hverju sinni.

Hvernig virkar endurfjármögnun?

    Endurfjármögnun

    Endurfjármögnun

    Ef þú ert að endurfjármagna húsnæðislán hjá okkur eða öðrum lánveitanda þá sækir þú um endurfjármögnun hér.

    Lán

    Velja lán

    Lánin geta verið verðtryggð, óverðtryggt eða blönduð. Í húsnæðislánareiknivélinni getur þú skoðað hvaða möguleikar henta þér og ákveðið lánasamsetningu.

    Gögn móttekin

    Senda inn umsókn

    Um leið og þú hefur ákveðið lánasamsetningu getur þú sent inn umsókn með rafrænum hætti.

    Áreiðanleikakönnun

    Svara áreiðanleikakönnun

    Öllum umsækjendum ber að svara spurningalista áður en lántaka fer fram. Það er hægt að svara hér.

    Umsókn samþykkt

    Umsókn samþykkt

    Um leið og öll skilyrði um lánveitingu hafa verið uppfyllt er lánsumsókn samþykkt.

    Undirritun

    Undirritun skuldaskjala

    Við munum hafa samband við þig þegar skjölin eru tilbúin til undirritunar.

    Þinglýsing

    Gögn send til Sýslumanns

    Skuldabréf er sent í þinglýsingu til Sýslumanns. Afgreiðslutíminn er breytilegur eftir Sýslumannsembættum.

    Ráðstöfun

    Ráðstöfun láns

    Þegar skuldabréfið berst til okkar úr þinglýsingu er láninu ráðstafað samkvæmt fyrirmælum lánsumsóknar.

    Séreign

    Nýttu séreignina

    Þú getur sótt um að nota séreignarsparnaðinn til að greiða beint inn á lán, hægt er að sækja úrræðið hér. Það eru tvær leiðir í boði fyrir fyrstu kaupendur til að greiða séreign inn á lán, Höfuðstólsleið eða Blönduð leiðLesa nánar.

    Mikilvægt er að uppfæra þessar upplýsingar á vef RSK eftir að lánið hefur verið endurfjármagnað.

Bóka tíma

Bókaðu ráðgjöf þegar þér hentar.

Sæki þjónustur…

Spurt og svarað

Það er eðlilegt að ýmsar spurningar vakni við val á húsnæðislánum. Hérna svörum við algengum spuringum.